Milli jóla og nýárs um nótt við
komum, í nístingskulda, slyddu og él
Syneta hét skipið
sem skreið yfir landið
með skaddað stýri og laskaða vél
Við austurströndina stóðum á dekki
störðum í sortans kólguský
drunur brimsins bárust um loftið
bæn mín drukknaði óttanum í
Innst í firðinum
sáum við ljósin lýsa
ljósin sem komu þorpinu frá
um síðir þau hurfu
í hríðina dökku
um hjörtu okkar flæddi lífsins þrá
Þessa nótt skipið á Skrúðnum steytti
skelfing og ótti tóku öll völd
Í bátana komumst við
kaldir og þreyttir
í kolsvarta myrkri beið aldan köld
Þá nótt við dóum,
drottinn minn góður
drukknuðum bjarglausir einn og einn
Himinn og haf sýndust saman renna
okkar síðasta tak
var brimsorfinn steinn
Innst í firðinum
Í þangi við fundumst
en fimm ennþá vantar
fjörunni aldan skilaði oss
í hús á börum við bornir vorum
með bláa vör eftir öldunnar koss
Ef þú siglir um sumar, vinur
og sérð við Skrúðinn brimsorfin sker
viltu biðja þeim fyrir er fórust
þeim fimm sem aldrei skiluðu sér