Kvöldið er okkar og vor um vaglaskóg.
Við skulum tjalda í grænum berjamó
Leiddu mig vinur í lundinn frá í gær.
Lindin þar niðar og birkihríslan grær.
leikur í ljósum, lokkum og angandi rósum
leikur í ljósum, lokkum hinn vaggandi blæ.
Daggperlur glitra um dalinn færist ró
Draumar þess rætast er gistir vaglaskóg
Kveldrauðu skini á krækilyngið slær.
Kyrrðin er friðandi mild og angurvær.
leikur í ljósum, lokkum og angandi rósum
leikur í ljósum, lokkum hinn fagnandi blær.
leikur í ljósum, lokkum og angandi rósum
leikur í ljósum, lokkum hinn fagnandi blær.
Oooh lokkum hinn fagnandi blær.